Icelandic Meteorological Office

Hornbrekkufjall,

Gryfja tekin í vestur viðhorfi, vindpakkaður snjór svolítið öldóttur og harðpakkaður en lausamjöll inn á milli í skjóli við vindi. Grjót og melar gægjast upp sumstaðar. Verður að teljast skyndigryfja þar sem hitamælir hefur glatast í síðustu gryfju.
Undefined

Hafnarhyrna 4

Gryfjan er tekin neðan við neðstu og nýju stoðvirkjalínu í Hafnarhyrnu, neðan við SM2 bergmálsmælinn. Það safnast snjór á milli varnarvirkjana með allt að 3m snjódýpt. SM4 mælir sem hefur verið snjólaus undanfarna vetur er fenntur í kaf núna. Mikið harðfenni er í hlíðunum og skafsnjór ofan á, góð binding þar á milli. Engin snjóflóð eru sjáanleg.
Undefined

Pages

Subscribe to RSS - Icelandic Meteorological Office